Í gapastokknum: Auður Lilja Erlingsdóttir
Í gapastokknum að þessu sinni er Auður Lilja Erlingsdóttir. Hún situr í 4. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Nafn:Auður Lilja Erlingsdóttir
Aldur:29 ára
Uppruni og núverandi búseta: Uppruni...tja...er fædd í Svíþjóð en ólst upp í Reykjavík og Borgarnesi. Bý nú í Reykjavík.
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Þar sem það er ekki í tísku að nota gapastokk lengur held ég að við ættum bara að gefa honum langt og verðskuldað frí frá völdum.
Kýr eða belja? Kýr
Kjöt eða gras? Bara í bland
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi? Jafnrétti til náms
Uppáhalds róttæka tónlist? Byssupiss og allt sem Ugla syngur
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Ætli hann sé ekki að sleikja sárin eitthversstaðar eða að skrifa nýja bók um hvernig Ísland getur orðið ríkasta land í heimi?
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Ég flokka
Hvað er mesta gróðærishneysklið? Það að gefa bankana var jú frekar gróft.
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt? Ég fæ alltaf svo skemmtilegt fólk í afmælið mitt að ég þarf ekki að leita á náðir sögunnar.
Af hverju vinstripólitík? Því ég vil búa í samfélagi þar sem enginn þarf að óttast framtíðina.

