Ung vinstri græn
Fréttasafn

Í gapastokknum:  Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir

  • Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir

Í gapastokknum að þessu sinni er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. Hún situr í 4. sæti á lista VG í Norðvesturkjördæmi.

Nafn: Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
Aldur:
27
Uppruni og núverandi búseta: Er úr Reykholtsdalnum í Borgarfirði og er flutt aftur í sveitina
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Senda hann í langt frí
Kýr eða belja? Kýr
Kjöt eða gras? Gott hvað með öðru en allt íslenskt ef hægt er að koma því við.
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi? Breytingum á því starfsumhverfi sem fyrirtæki búa við til að gera þau betur í stakk búin til að takast á við erfiða tíma sem framundan eru í íslensku samfélagi. Það er mikilvægt að koma hjólum atvinnulífsins af stað sem allra fyrst svo lægðin verði ekki dýpri en þarf.
Uppáhalds róttæka tónlist? Er ekki mikið „uppáhalds“ manneskja...
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Hannes hver...
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Flokka og skila
Hvað er mesta gróðærishneysklið? Gengdarlaus siðferðisbrestur og siðblinda þeirra manna sem hömuðust við að koma fé almennings úr landi til eign nota.
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt?
Nelson Mandela
Af hverju vinstripólitík? Af því ég er náttúruverndarsinni og vil að allir óháð kyni, búsetu, aldri og uppruna njóti sömu mannréttinda.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica