Í gapastokknum: Kristján Ketill Stefánsson
Í gapastokknum að þessu sinni er Kristján Ketill Stefánsson. Hann situr í 8. sæti á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Nafn: Kristján Ketill Stefánsson
Aldur: 30
Uppruni og núverandi búseta: Fljótsdalshérað, Reykjavík
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Henda honum. Það er ekki hægt að gera við hann.
Kýr eða belja? Kýr
Kjöt eða gras? Kjöt
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi? Austurísku leiðinni
Uppáhalds róttæka tónlist? Bítlavinafélagið
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Tröllum gefinn
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Flokka heimilisruslið
Hvað er mesta gróðærishneysklið? Einkavinavæðing bankanna
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt? Karl Marx
Af hverju vinstripólitík? Því mér er ekki sama um aðra

