Í gapastokknum: Júlíana Garðarsdóttir
Núna erum við á vinstri.is að fara í gang með smá kynningu á ungum frambjóðendum á listum fyrir Alþingiskosningar 25. apríl. Þessi liður heitir að venju gapastokkurinn. Fyrst til þess að taka þátt í honum er Júlíana Garðarsdóttir. Hún situr í 12. sæti á lista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi.
Nafn: Júlíana Garðarsdóttir
Aldur: 18 að detta í 19.
Uppruni og núverandi búseta: Upphaflega er ég Reykvíkingur en eins og er bý ég í sveitinni fyrir austan.
Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn? Eitthvað ótrúlega frumlegt og skemmtilegt sem engum hefur dottið í hug að gera við stjórnmálaflokka á Íslandi hingað til!
Kýr eða belja? Kusa! Allavega alls ekki belja, það er móðgandi fyrir greyin (ég bý á kúabúi)!
Kjöt eða gras? Gras kemur alltaf betur út, hvernig sem á málið er litið:) En í sambandi við mataræði, þá er ég grænmetisæta.
Hvað er það fyrsta sem þú myndir beita þér fyrir á þingi? Aðskilnaði ríkis og kirkju! algjörlega..
Uppáhalds róttæka tónlist? Það er nú bara misjafnt, gæti til dæmis nefnt Loop Troop og Rage against the machine. Baskarnir og pönkararnir í Eskorbuto eru líka mjög skemmtilegir:)
Hvar er Hannes Hólmsteinn? Guð má vita.. Allavega ekki hér hjá mér! Því miður, ég hef eitt og annað sem mig langar að spurja þann mann
Hvernig sýnir þú umhverfisvernd í verki? Ég endurvinn pappír, flöskur og þess háttar, flokka rusl, hendi ekki rusli á göturnar og fleira...
Hvaða manneskju úr mannkynssögunni myndirðu vilja bjóða í afmælið þitt?
Charles De-Gaulle?
Af hverju vinstripólitík? hún virkar!

