Ung vinstri græn
Fréttasafn

Friðrik í gapastokknum

Friðrik Atlason situr í gapastokknum í dag.

Nafn: Friðrik Atlason

Fæðingardagur/ár/staður: 5. desember 1975 í Reykjavík

1. Rétthentur eða örvhentur?
Rétthentur

2. Samgöngumáti?
Draumurinn að eignast scooter (vespu) annars er ég duglegur að keyra um á bílnum mínum.

3. Kaffi eða te?
Kaffi, kaffi, kaffi, nýmalað og sterkt.

Eftirlætis...
4. ...sjónvarpsefni?
Ég á mér ekkert eftirlætis sjónvarpsefni.

5. ...kvikmynd?
Night of the living dead.

6. ...hljómplata?
Elvis Presley ? Elvis Presley

7. ...eftirmatur?
Gott kaffi.

8. ...bók?
Meistarinn og Margarita

9. ...kaffihús?
Eldhúsið mitt.

10. ...bjórtegund?
Erdinger.

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Þar sem ég gaf mér ekki tíma til að baka fyrir síðasta laugardag þá svindlaði ég og keypti köku. Hún kostaði 875 krónur....

12. Steingrímur eða Che?
Ég kynntist aldrei Che þannig að...

13. Pílukast eða körling?
Píla.

14. Kýr eða belja?
Það er auðveldara að fallbeygja belja.

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Leikskólanum Mýri.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Akureyrarferð í haust til að sækja blóm í garðinn minn.

17. ...en erlendis?
Fjölskylduferð til Tyrklands síasta sumar, yndislegt fólk þar.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Ég myndi setja fram breytingarfrumvarp vegna laga um nauðganir og kynbundið ofbeldi.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Þar sem ég vinn með fötluðum og er femínist þá er félagsmálaráðuneytið spennandi en umhverfisráðuneytið heillar líka.

20. Alþýðurbandalagið eða Alþýðurflokkurinn?
Bandalagið

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Er þér vel við snjóinn?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica