Ung vinstri græn
Fréttasafn

Benedikt í gapastokknum

Benedikt Kristjánsson situr fastur í gapastokknum í dag.

Nafn:Benedikt Kristjánsson.

Fæðingardagur/ár/staður: 24. apríl, 1986 á Akureyri.

1. Rétthentur eða örvhenurt?
Rétthentur

2. Samgöngumáti?
Bíllinn hennar mömmu.

3. Kaffi eða te?
Mjólk.

Eftirlætis...
4. ...sjónvarpsefni?
Quantum Leap.

5. ...kvikmynd?
Raiders of the lost ark.

6. ...hljómplata?
Eric the Red með Týr.

7. ...eftirmatur?
Það getur verið svo margt.

8. ...bók?
Njála.

9. ...kaffihús?
Stunda þau nú ekki mikið

10. ...bjórtegund?
Drekk ekki áfengi.

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Ekki miklu.

12. Steingrímur eða Che?
Steingrímur auðvitað, hvar væri Ísland án hans?

13. Pílukast eða körling?
Spila hvorugt, en bæði mjög áhugavert.

14. Kýr eða belja?
Naut.

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
mbl.is.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Akureyri um verslunarmannahelgina.

17. ...en erlendis?
Hastings-hátíðin á Englandi í október þar sem var 940 ára afmæli Hastings-bardagans sem var árið 1066.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Um að taka Ísland af lista viljugra þjóða og auka fjárlög til uppbyggingar í þróunarlöndunum.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Ætli það væri ekki utanríkisráðuneytið.

20. Myndirðu giftast hægri- manni/konu
Ástin getur blómstrað hvar sem er og komið manni algjörlega á óvart.

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Alþýðubandalagið eða Alþýðuflokkurinn?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica