Emil Hjörvar í gapastokknum
Eftir töluverð átök, riskingar og auðvitað japp, jaml og fuður tóks okkur að festa Emil Hjörvar Petersen athafnamann og forvalsframbjóðanda í gapastokkinn.
Nafn: Emil Hjörvar Petersen
Fæðingardagur/ár/staður: 7. maí 1984 í Gautaborg í Svíþjóð.
1. Rétthentur eða örvhentur?
Rétthentur.
2. Samgöngumáti?
Sjálfrennireið.
3. Kaffi eða te?
Svart kaffi og grænt te.
Eftirlætis...
4. ...sjónvarpsefni?
Reyni að fylgjast með fréttum á hverjum degi. En svona til þess að telja upp einhverja sjónarvarpsþætti: Family Guy, Lost, Black Books og fleira. Annars horfi ég nú ekkert það mikið á sjónvarp.
5. ...kvikmynd?
Flestar Kubrick-myndirnar.
6. ...hljómplata?
Þetta er erfið og opin spurning eins og sú fyrri. Ætla frekar að nefna nokkrar hljómsveitir og tónlistarmenn: Aphex Twin, Squarepusher, Boards of Canada, Autechre, Future Sound of London, Radiohead, Sigur Rós o.fl.
7. ...eftirmatur?
Allt sem er bragðgott og fer vel í maga.
8. ...bók?
Jæja já. Maður spyr ekki bókmenntafræðinema svona. Ég segi: allt sem er þess virði að lesa.
9. ...kaffihús?
Prikið (gott að skrifa þar á daginn), Kofinn, Næsti bar, Kúltúra.
10. ...bjórtegund?
Budweiser Budvar
11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Aðallega tíma og orku.
12. Steingrímur eða Che?
Chegrímur.
13. Pílukast eða körling?
Þegar ég var lítill fékk ég píluspjald og pílur í afmælisgjöf. Hengdi spjaldið upp á vegg í herberginu, bauð tveimur vinum í pílukast. Allur veggurinn í litlum götum. Fékk skammir.
14. Kýr eða belja?
Ég myndi segja að ég væri meiri kýrhaus heldur en beljaki.
15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Vefpóstinum mínum! Nánast undantekningarlaust eru svona 10 ? 20 nýir póstar á dag. Síðan rúntar maður um nokkur blogg og veftímarit.
16. Síðasta ferðalag innanlands?
Skrapp einsamall á Þingvelli síðla sumars, til þess að anda. T´ was nice!
17. ...en erlendis?
Finnland, í janúar, í ?eurowintercamp? með UVG.
18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Koma á fót gjaldfrjálsu heilbrigðis- og menntakerfi.
19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Myndi líklegast vilja fá mennta- og menningarmálaráðuneytið. Mínir helstu styrkleikar liggja á því sviði.
20.
22.Hvert er versta framboðsslagorðið?
Allt sem er með orðinu ?með? í. Mig var byrjað að sundla í síðustu kosningabaráttu yfir hallærislegum slagorðum hinna flokkanna.
21. Spurning til næsta viðmælenda?
Hvað gerist fyrir þig á fullu tungli?
Ung vinstri græn
