Ung vinstri græn
Fréttasafn

Þórunn í gapastokknum

Í dag situr Þórunn Ólafsdóttir forvalsframbjóðandi föst í gapastokknum.

Nafn: Þórunn Ólafsdóttir

Fæðingardagur/ár/staður: 5. marz 1985 í Reykjavík.

1. Rétthent eða örvhent?
Það er frekar óljóst, ég skrifa með hægri en flest annað deilist nokkuð jafnt.

2. Samgöngumáti?
Ýmist gangandi eða hjólandi, stundum akandi.

3. Kaffi eða te?
Kaffi, ekki spurning. Sterkt kaffi með smá mjólk.

Eftirlætis...

4. ...sjónvarpsefni?
Arrested Development er efst á vinsældarlistanum um þessar mundir.

5. ...kvikmynd?
Pay it forward er alltaf svo falleg, en annars virðist aðdáun mín á Mary Poppins ekki ætla að eldast af mér.

6. ...hljómplata?
Þessi er of erfið...

7. ...eftirmatur?
Svo lengi sem það inniheldur súkkulaði...

8. ...bók?
Hvunndagshetjan eftir Auði Haralds kemur sterklega til greina. Veronika ákveður að deyja eftir
Paulo Coelho er í líka miklu uppáhaldi. Annars er yfirleitt mikið um nýjar uppáhalds bækur.

9. ...kaffihús?
Þessa dagana er Café Nielsen á Egilsstöðum málið.

10. ...bjórtegund?
Carlsberg.

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Sú tala hefur ekki verið endanlega staðfest, en hún veltur að sjálfsögðu á milljónum.

12. Steingrímur eða Che?
Steingrímur, enda er hann í töluvert betri aðstöðu til að breyta einhverju.

13. Pílukast eða körling?
Klárlega pílukast.

14. Kýr eða belja?
Kind.

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Oftast blogginu mínu/.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Stutt ferð í höfuðborgina og þaðan á Akureyri fyrstu helgina í október..

17. ...en erlendis?
Barcelona síðsumars.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Frumvarp um aðskilnað ríkis og kirkju.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Félagsmálaráðuneytið.

20.
22.Hvað finnst þér um að beita borgaralegri óhlýðni þegar valdhafar sniðganga vilja almennings?
Upp að vissu marki tel ég það hið besta mál.

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Hvert er versta framboðsslagorðið?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica