Ung vinstri græn
Fréttasafn

Steinunn Þóra í gapastokknum

Í dag er Steinunn Þóra Árnadóttir forvalsframbjóðandi og hernámsandstæðingur í gapastokknum.

Nafn: Steinunn Þóra Árnadóttir

Fæðingardagur/ár/staður: 18. september 1977 á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað

1. Rétthent eða örvhent?
Rétthent.

2. Samgöngumáti?
Grænn Subaru.

3. Kaffi eða te?
Sterkt, svart kaffi.

Eftirlætis...

4. ...sjónvarpsefni?
Danskir framhaldsþættir.

5. ...kvikmynd?
My own private Idaho.

6. ...hljómplata?
Emil í Kattholti.

7. ...eftirmatur?
Gamli ísinn frá Ísbúðinni Hagamel.

8. ...bók?
Uppáhalds fræðibókin er Female Forms eftir Carol Thomas en hin klassíska róttæka barnabók Ali flugvélaræningi er líka alltaf í miklu uppáhaldi.

9. ...kaffihús?
Svarta Kaffið finnst mér huggulegt.

10. ...bjórtegund?
Budvar í flösku.

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Einhverjum hundraðköllum í kaffisjóð flokksins.

12. Steingrímur eða Che?
Ég lifi í núinu ? auðvitað Steingrímur.

13. Pílukast eða körling?
Væri alveg til í að prófa körling. Er hinsvegar lunkinn pílukastari.

14. Kýr eða belja?
Kýr eru nú tignarlegri.

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Jóni Knúti, knuturinn.blogspot.com/.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Helgarferð norður á Akureyri með rómantískum kvöldverði á besta veitingarstað landsins, Halastjörnunni í Öxnardal.

17. ...en erlendis?
Síðsumarsferð til Belgíu.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Frumvarp um að herinn hunskist burt úr Grindavík og hreinsi almennilega eftir sig á Miðnesheiði,
Heiðarfjalli og víðar.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Félagsmálaráðuneytið og taka til í málefnum fatlaðra, svo fatlað fólk geti verið þátttakendur í samfélaginu líkt og aðrir borgarar.

20. Rautt eða grænt?
Rautt.

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Hver er besta ástæðan fyrir því að hata Framsóknarflokkinn?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica