Ung vinstri græn
Fréttasafn

Kári Páll í gapastokknum

Í dag er Kári Páll Óskarsson, gjaldkeri UVG, í gapastokknum. Á næstu vikum mun gapastokkurinn vera tileinkaður ungliðum í framboði.

Nafn: Kári Páll Óskarsson

Fæðingardagur/ár/staður: 22. desember 1981 í Reykjavík.

1. Rétthentur eða örvhentur?
Rétthentur

2. Samgöngumáti?
Geng út um allt með aðstoð tónasksins (ipodsins) míns. Get ekki gengið án hans.

3. Kaffi eða te?
Kaffi! Kaffi! Sterkt, t.d. café americano hjá Segafredo.

Eftirlætis...
4. ...sjónvarpsefni?
Á ekki sjónvarp! Annars væri það ?Sopranos?.

5. ...kvikmynd?
Líklega ?Pulp Fiction?, eða kannski ?Les Invasions Barbares? eftir Denys Arcand.

6. ...hljómplata?
Akkúrat núna er það ?10,000 Days? með Tool. Svo er ?The Outsider? með DJ Shadow líka ansi skemmtileg.

7. ...eftirmatur?
Ég er mjög hlynntur alls konar ís.

8. ...bók?
Líklega Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson. ?Ulysses? eftir James Joyce er líka voða fín.

9. ...kaffihús?
Café Babalu á Skólavörðustíg er mitt hverfis-kaffihús. Tíu-dropar á Laugavegi kemur líka sterkt inn.

10. ...bjórtegund?
Stella!

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Stefni á að vera ekki minni maður en Pétur Blöndal.

12. Steingrímur eða Che?
Steingrímur.

13. Pílukast eða körling?
Pílukast.

14. Kýr eða belja?
Kýr, þegar pabbi og mamma heyra til (þau eru íslenskufræðingar).

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Háskólapóstinum.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Þjóðvegarúntur um suðurlandið, til Suðursveitar og Hafnar í Hornafirði.

17. ...en erlendis?
Amnesty International-ráðstefna í Stokkhólmi í ágúst síðastliðnum.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Frumvarp um afnám launaleyndar á almennum vinnumarkaði.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Utanríkisráðuneytið, takk.

20. Finnst þér súrmatur góður?
Nei, ég er nógu súr fyrir.

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Hefur þú upplifað kartesískan klofning?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica