Ung vinstri græn
Fréttasafn

Gapastokkurinn: Katrín Jakobsdóttir

Nú hefst nýr liður á vinstri.is, gapastokkurinn. Í vetur munum við setja hina og þessa í
gapastokkinn og spyrja þá mkilvægra spurninga. Fyrst til að setjast í gapastokkinn er Katrín
Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna.

Nafn: Katrín Jakobsdóttir

Fæðingardagur/ár/staður: 1. febrúar 1976, Landspítalanum í Reykjavík.

1. Rétthent eða örvhent?
Rétthent

2. Samgöngumáti?
Gangandi, akandi, í strætó; allur gangur á því.

3. Kaffi eða te?
Gott kaffi með heitri mjólk.

Eftirlætis...
4. ...sjónvarpsefni?
Horfi nú ekki mikið á sjónvarp... ætli ég nefni ekki Sigtið með Frímanni Gunnarssyni, bind
miklar vonir við nýja seríu.

5. ...kvikmynd?
Fyrri Stjörnustríðsserían öll.

6. ...hljómplata?
Fyrsta plata Stone Roses.

7. ...eftirmatur?
Fátt er betra en góður heimagerður ís.

8. ...bók?
Einmitt núna er það ljóðabók Sigfúsar Daðasonar, Hendur og orð. En annars er alltaf ný
eftirlætis bók.

9. ...kaffihús?
Kaffitár og svo Mokka þegar mann langar í vöfflu.

10. ...bjórtegund?
Drekk bara lífrænan bjór sem fæst ekki hér á landi.

11. Hversu miklu býst þú við að eyða í kosningabaráttuna?
Álíka mikið og nýtt gloss og klipping kostar.

12. Steingrímur eða Che?
Steingrímur.

13. Pílukast eða körling?
Pílukast.

14. Kýr eða belja?
Kýr að sjálfsögðu.

15. Vefrúnturinn byrjar á...?
Múrnum.

16. Síðasta ferðalag innanlands?
Fór bæði í Hrísey og Bjarnarfjörðinn í sumar.

17. ...en erlendis?
Kaupmannahöfn í hitteðfyrra.

18. Fyrsta frumvarpið sem þú myndir leggja fyrir Alþingi?
Lengja fæðingarorlofið upp í heilt ár til að byrja með.

19. Hvaða ráðuneyti viltu fá?
Menntamálaráðuneytið, takk.

20. Hvort myndirðu frekar leggjast á legubekkinn hjá Dr. Phil eða Dr. Gunna?
Báðir ábyggilega sérlega skemmtilegir til að spjalla við!

21. Spurning til næsta viðmælenda?
Finnst þér súrmatur góður?

Ung vinstri græn

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica