1. Maí!
Kæru félagar! Alþjóðadagur verkalýðsins er næstkomandi sunnudag. Að venju verður ganga frá hallgrímskirkju kl. 14 niður að Ingólfstorgi þar sem fluttar verða ræður og nallinn sunginn. Við viljum vekja athygli á morgunkaffi SHA (Samtaka Herstöðvarandstæðinga) í Listhúsinu við Engjaveg í Laugardal (beint á móti Nordica Hotel) og hefst það kl. 11.
Að göngu lokinni verður síðan meira kaffi, en þá að Suðurgötu 3, höfuðstöðvum VG og UVG og má fólk búast við heitu kaffi og feitum kökum í boði VG í Reykjavík. Við hvetjum alla ungliða til að taka sér smá pásu frá próflestri og sýna sig og sjá aðra á Sunnudaginn nk. Einnig er algjört möst að kunna nallann, en hér er fyrsta erindið af þeim söng ásamt viðlagi.
UVG
