Fréttasafn
Kjósa, telja, ..., þingsæti
Hvernig verður atkvæði að þingsæti?
Margir hafa áður kosið í Alþingiskosningum og einhverjir til viðbótar munu kjósa í fyrsta skipti 25. apríl nk. Það er á færi allra að fylla út atkvæðaseðil - einn kross við einn flokk, kannski smá yfirstrikun eða endurröðun hjá þeim flokki. Þar með er tilbúið atkvæði, sem vonandi er gilt.
Síðan tekur við talning en það ferli vefst örugglega ekki fyrir neinum. En það eru aftur á móti ekki allir sem hafa kynnt sér hvernig atkvæðin eru notuð til að úthluta þingsætum.
Á Íslandi er hin svo nefnda D'Hondt regla notuð. Fyrir nákvæma útlistun á stærðfræðinni á bakvið hana, þá mæli ég með Wikipedia.
Það eru til tvær útgáfur af þingsætum, kjördæmakjörið þingsæti og jöfnunarsæti. Atkvæði í einu kjördæmi gildir einungis fyrir kjördæmakjörna sætið. En til þess að fá jöfnunarsæti þá er skoðað heildaratkvæðamagn flokks yfir landið.
Reyndar er skilyrði fyrir því að fá jöfnunarsæti, en það er að flokkur þarf að fá 5% atkvæða á landsvísu. Þetta er reglan sem margir halda að eigi við um öll þingsætin, þ.e. margir halda að framboð þurfi 5% til þess að geta fengið þingsæti. Þetta gildir einungis um jöfnunarþingsæti.
Síðan tekur við talning en það ferli vefst örugglega ekki fyrir neinum. En það eru aftur á móti ekki allir sem hafa kynnt sér hvernig atkvæðin eru notuð til að úthluta þingsætum.
Á Íslandi er hin svo nefnda D'Hondt regla notuð. Fyrir nákvæma útlistun á stærðfræðinni á bakvið hana, þá mæli ég með Wikipedia.
Það eru til tvær útgáfur af þingsætum, kjördæmakjörið þingsæti og jöfnunarsæti. Atkvæði í einu kjördæmi gildir einungis fyrir kjördæmakjörna sætið. En til þess að fá jöfnunarsæti þá er skoðað heildaratkvæðamagn flokks yfir landið.
Reyndar er skilyrði fyrir því að fá jöfnunarsæti, en það er að flokkur þarf að fá 5% atkvæða á landsvísu. Þetta er reglan sem margir halda að eigi við um öll þingsætin, þ.e. margir halda að framboð þurfi 5% til þess að geta fengið þingsæti. Þetta gildir einungis um jöfnunarþingsæti.
Kjördæmin hafa ólíkan fjölda þingsæta:
| Kjördæmi |
Kjördæmasæti | Jöfnunarsæti |
|---|---|---|
| Norðvestur | 8 | 1 |
| Norðaustur | 9 |
1 |
| Suður | 9 |
1 |
| Suðvestur (Kraginn) |
10 |
2 |
| Reykjavík norður |
9 |
2 |
| Reykjavík suður |
9 | 2 |
Það eru því samtals 54 kjördæmakjörnir þingmenn og 9 jöfnunarþingmenn.
Úthlutun kjördæmissæta:
Þegar kjördæmaþingsætunum 54 er úthlutað er hvert kjördæmi skoðað fyrir sig. Skoðum niðurstöðurnar fyrir suðvesturkjördæmið í Alþingiskosningunum 2007 (fengið af vef Hagstofunnar). Þær voru:
Flokkur Atkvæði Hlutfall
Framsóknarflokkur 3250 7,18 %
Sjálfstæðisflokkur 19307 42,64 %
Frjálslyndi flokkurinn 3051 6,74 %
Samfylkingin 12845 28,36 %
Vinstrihreyfingin - grænt framboð 5232 11,55 %
Íslandshreyfingin 1599 3,53 %
Alls 45284 100 %
| Flokkur | Atkvæði | Hlutfall |
|---|---|---|
| Framsóknarflokkur | 3250 |
7,18 % |
| Sjálfstæðisflokkur | 19307 |
42,64 % |
| Frjálslyndi flokkurinn | 3051 |
6,74 % |
| Samfylkingin | 12845 |
28,36 % |
| Vinstrihreyfingin - grænt framboð |
5232 |
11,55 % |
| Íslandshreyfingin |
1599 |
3,53 % |
| Alls | 45284 |
100 % |
Kjördæmakjörnum þingmönnum er úthlutað þannig að fyrsti þingmaður kjördæmisins kemur af þeim lista sem fær hæst hlutfall atkvæða. Þegar þeim lista hefur verið úthlutað þingsætið er hlutfalli listans deilt með tveimur og athugað hvaða listi væri þá með hæst hlutfall. Sá listi fær annan þingmanninn og við það er hlutfallstala þess lista deild með tveimur (eða þremur ef um sama lista er um að ræða og fékk fyrsta þingmanninn). Þannig gengur þetta koll af kolli þar til búið er að úthluta öllum kjördæmakjörnu þingmönnum kjördæmisins.
Fyrsti þingmaður SV kjördæmis er þá 1. maður á lista Sjálfstæðisflokksins (Þorgerður Katrín). Næsta hlutfallstala XD er þá 42,64%/2 = 21,32%.
Annar þingmaður SV kjördæmis er 1. maður á lista Samfylkingarinnar sem hefur 28,36% atkvæða á bakvið sig. Næsti inn á lista Samfylkingarinnar er með 14,18%.
Fyrsti þingmaður SV kjördæmis er þá 1. maður á lista Sjálfstæðisflokksins (Þorgerður Katrín). Næsta hlutfallstala XD er þá 42,64%/2 = 21,32%.
Annar þingmaður SV kjördæmis er 1. maður á lista Samfylkingarinnar sem hefur 28,36% atkvæða á bakvið sig. Næsti inn á lista Samfylkingarinnar er með 14,18%.
Þannig er hægt að ganga koll af kolli og fá út kjördæmakjörna þingmenn SV kjördæmis:
| Sæti |
Þingmaður |
Flokkur |
Fjöldi atkvæða |
Hlutfallstala |
|---|---|---|---|---|
| 1. | Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir |
D | 19.307,0 | 42,64 % |
| 2. | Gunnar Svavarsson |
S | 12.845,0 | 28,36 % |
| 3. | Bjarni Benediktsson |
D | 9.653,5 | 21,32 % |
| 4. | Ármann Kr. Ólafsson |
D | 6.435,7 | 14,21 % |
| 5. | Katrín Júlíusdóttir |
S | 6.422,5 | 14,18 % |
| 6. | Ögmundur Jónasson |
V | 5.232,0 | 11,55 % |
| 7. |
Jón Gunnarsson |
D | 4.826,8 | 10,66 % |
| 8. | Þórunn Sveinbjarnardóttir |
S | 4281,7 | 9,45 % |
| 9. | Ragnheiður Elín Árnadóttir |
D | 3.861,4 | 8,53 % |
| 10. | Siv Friðleifsdóttir |
B | 3250,0 | 7,18 % |
Í öllum kjördæmum þarf að halda utan um þá tvo sem eru næstir inn á þing skv. þessum tölum, þ.e. sjöttu og sjöundu þingmenn Sjálfstæðisflokksins, fjórðu og fimmtu þingmenn Samfylkingarinnar og svo framvegis. Þær tölur eru notaðar til þess að úthluta jöfnunarþingsætum.
Jöfnunarsæti
Þegar er búið úthluta öllum kjördæmasætunum þá er hægt að byrja á jöfnunarsætunum. Við byrjum á að telja saman alla þingmenn hvers lista fyrir sig. Næst tökum við heildaratkvæði allra hreyfinganna og deilum í hverja atkvæðatölu fyrir sig með fjölda kjördæmasæta að viðbættum einum, tveimur og svo framvegis. Hver listi fyrir sig fær einn jöfnunarþingmann fyrir hverja tölu sem hann á meðal þeirra níu hæstu. Þetta eru hinar svokölluðu landstölur.
Þeir listar sem hafa færri en 5% atkvæða koma ekki til greina. Íslandshreyfingin kemur því ekki til greina, þar sem að hún fékk 3,3% atkvæða.:
| Listi |
Þingmenn |
Atkvæði |
Þingmenn+1 |
Þingmenn+2 |
Þingmenn+3 |
|---|---|---|---|---|---|
| B | 6 | 21.350 |
3050 (4) |
2668,75 |
2372,22 |
| D | 24 | 66.754 | 2670,16 (9) |
2567,46 | 2472,37 |
| F | 1 | 13.233 | 6616,5 (1) |
4411 (2) |
3308,25 (3) |
| I | 0 | 5.953 | - | - | - |
| S | 15 | 48.743 | 3046,43 (5) |
2867,23 (7) |
2707,94 (8) |
| V | 8 |
26.136 | 2904 (6) |
2613,6 | 2376 |
Það sést strax að Frjálslyndiflokkurinn á fyrstu þrjá jöfnunarþingmennina af níu, þar sem að landstölur flokksins eru þær þrjár hæstu. Því næst væri Framsóknarflokkurinn með einn inn. Svo fengi Samfylkingin einn, Vinstri græn einn. Svo fengi Samfylkingin tvo í viðbót og loks fengi Sjálfstæðisflokkurinn einn. Takið eftir að það hefði ekki þurft mikið til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefði misst þennan þingmann til Framsóknar, bara tólf atkvæði í viðbót.
Þegar þessar tölur eru komnar, er tekin fyrsta landstalan og fundið það kjördæmi þar sem að hæsta hlutfallstalan er. Hérna er það 6,99% hjá Frjálslyndum í suðurkjördæmi. Síðan er tekin næsta landstala, hún er hjá XF og þá er fundin hæsta hlutfallstala sem er ennþá ónotuð. Hana er að finna í norðvesturkjördæmi, 6,79%. Á sama hátt fæst þriðji jöfnunarmaður Frjálslynda.
| Kjördæmi |
B | D | F | S | V |
|---|---|---|---|---|---|
| Norðvestur | 9,39 % |
7,26 % |
6,79 % (2) |
7,06 % |
7,98 % |
| Norðaustur | 8,19 % (4) |
7,00 % |
5,91 % |
6,92 % |
6,52 % |
| Suður | 6,24 % |
7,19 % |
6,99 % (1) |
8,92 % |
4,93 % |
| Suðvestur | 3,59 % |
7,11 % (9) |
6,74 % |
7,09 % (7) |
5,78 % |
| Reykjavík suður |
5,90 % |
6,54 % |
6,76 % (3) |
7,25 % |
7,18 % (6) |
| Reykjavík norður |
6,24 % |
7,28 % |
6,32 % |
7,31 % (5) /5,85 % (8) |
5,64 % |
Næst er tekinn jöfnunarmaður hjá Framsókn (4. jöfnunarmaður yfir höfuð). Þrátt fyrir að hæsta hlutfallstalan er í NV kjördæmi hjá Framsókn, þá er búið að fylla það kjördæmi þar sem Frjálslyndir tóku eina jöfnunarsætið. Þannig að þá er tekinn næststærsta hlutfallstalan sem er í NA kjördæmi. Þannig gengur þetta þangað til að öll sætin eru orðin full.
| Kjördæmi lista |
Nr. jöfn.sætis |
Landstala |
Flokkur |
Hlutfallstala |
|---|---|---|---|---|
| Suður | 1. | 6617 |
F | 6,99 % |
| Norðvestur |
2. | 4411 |
F | 6,79 % |
| Reykjavík suður |
3. | 3308 |
F | 6,76 % |
| Norðaustur | 4. | 3050 | B | 8,19 % |
| Reykjavík norður |
5. | 3046 | S | 7,31 % |
| Reykjavík suður |
6. | 2904 | V | 7,18 % |
| Suðvestur | 7. | 2867 | S | 7,09 % |
| Reykjavík norður |
8. | 2708 | S | 5,85 % |
| Suðvestur | 9. | 2670 | D |
7,11 % |
Til gamans má geta að það er hægt að fá 4 þingsæti án þess eiga rétt á jöfnunarsæti. Að vísu þarf tiltekinn listi að fá helming atkvæða norðvesturkjördæmis (um 11 þúsund atkvæði, sem eru tæplega 5% af heildaratkvæðamagninu).
Fyrir áhugasama, þá bendi ég á síðu landskjörstjórnar
Erlendur Jónsson

