Ung vinstri græn
Fréttasafn

UVG á ferð um landið - dagar 3 og 4

  • Hringferð UVG 2009 - Mynd 1

Laugardagurinn 18. Apríl

Vöknum eftir svefn hinna saklausu hjá Bjarna, formanni UVG á Akureyri. Byrjum daginn á heitu pottunum hér á Akureyri og skellum okkur því næst í bakaríið. Eftir holla og staðgóða máltíð (jarðaberjaglassúr telst jú örugglega vera einn af 5 á dag!) höldum við rakleitt til næsta áfangastaðarokkar, Egilsstaða. Við komum þangað um hálf fjögur og hittum fólkið í kosningamiðstöðinni. Þar bíður nýjasti ferðafélaginn okkar, Kristján Ketill,með rjúkandi heitan kassa af Íllgresi, málgagni Ungra vinstri grænna. Seinna um daginn verður Auður Lilja að hverfa frá vegna anna í kosningabaráttunni enda í baráttusæti í Reykjavík-norður. Um kvöldið tryllum við svo lýðinn hér á Egilsstöðum á stórtónleikum UVG sem heppnuðust stórvel (því hvernig getur sleikur ekki heppnast vel?).

Ísleifur, Kristján Ketill og Þórir.

Sunnudagurinn 19. Apríl

Rísum úr rekkju um hádegisbil eftir litríkt gærkvöld. Þurfum líklega allir nokkra tíma hjá sjúkraþjálfara eftir læti gærkvöldsins en við látum það ekki aftra okkur frá því að bera út fagnaðarerindið. Dagurinn fer í að rúnta um Austfirðina og dreifa bæklingum á kaupstaðina og kosningamiðstöðvarnar þar. Kíkjum á álverið á Reyðarfirði og afhendum þjónustuborðinu eintaki af Grænni Framtíð, riti Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs um umhverfisverndarmál, með loforði um að þetta verði á skrifborði upplýsingafulltrúans á mánudagsmorguninn. Endum daginn á hrísgrjónagrauti á Höfn í Hornafirði og heimsókn í kosningamiðstöðina þar.
Ísleifur, Kristján Ketill og Þórir.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica