Fréttasafn
Íllgresið komið upp
Íllgresi - málgang Ungra vinstri grænna er komið út og verður dreift um allt land á næstunni.
Meðal efnis í blaðinu er:
- 18 ára Hrunadans: Upprifjun á því hvernig hægristjórnir Sjálfstæðisflokksins fóru að því að leggja norrænt velferðarsamfélag á hliðina.
- Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur, varaformann Vinstri grænna og menntamálaráðherra.
- Forgangsröðun í þágu fólksins: Tillögur Ungra vinstri grænna að forgangsröðun þegar kemur að niðurskurði hjá ríkinu.
- Umfjöllun um femíníska tónlist, umfjöllun um náttúruvernd og margt fleira.
Forsíðumynd Íllgresis gerði Kári Emil Helgason, sem jafnframt sá um uppsetningu og hönnun. Hún er af manni(kapítalista) sem blés svo stóra tyggjókúlu(frjálshyggja) að hún sprakk í andlitið á honum.
Á næstu dögum verður blaðinu dreift um allt land en það er einnig aðgengileg hér á vefnum.
