Fréttasafn
UVG á ferð um landið - dagur tvö
Við byrjuðum daginn snemma í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, og keyrðum þaðan beint norður á Akureyri. Við skiptum okkur niður á framhaldsskólana tvo, MA og VMA, töluðum við fólk og dreifðum efni frá UVG. Í skólunum á Akureyri var fínasta stemning og ekki var hún síðri á tónleikum UVG á Akureyri um kvöldið í Deiglunni. Þar komu fram trúbadixan Guðrún, Buxnaskjónar og Morðingjarnir, Deiglan var troðin átímabili og þvílíkt stuð og læti!
Steinunn heltist úr lestinni eftir tónleikana í kvöld, en á morgun halda Auður, Ísleifur og Þórir áfram á borgarafund á Egilsstöðum og tónleika í Valaskjálf annað kvöld. Ást og friður og sleikur!
Steinunn, Auður Lilja, Þórir og Ísleifur Egill
