Ung vinstri græn
Fréttasafn

UVG á ferð um landið – fyrsti dagur

  • Hringferð UVG 2009 - Mynd 1
Við lögðum af stað eldsnemma í morgun með nesti, djammskó, helling af glæsilegum barmmerkjum og bæklinga með menntamálaáherslum UVG, volga úr prentsmiðjunni. Í dag fórum við í Menntaskólann í Borgarnesi og Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Grundarfirði. Á báðum stöðum var okkur vel tekið bæði af nemendum og starfsfólki, og barmmerki og bæklingar ruku út. Það var afar gaman að taka þennan bíltúr uppá Snæfellsnesið í frábæru veðri, útsýnið var algerlega brilljant!

Hringferð UVG 2009 - Mynd 2Við keyrðum alla leið í Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu þar sem við gistum í nótt. Í fyrramálið ætlum við að skjótast í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, og bruna svo á Akureyri þar sem við stefnum á að heimsækja Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri, og vonandi getum við kíkt í Háskólann á Akureyri líka. Svo eru spennandi tónleikar annað kvöld í Deiglunni á Akureyri á vegum UVG á Akureyri og við látum okkur að sjálfsögðu ekki vanta!

- Steinunn, Auður Lilja, Þórir og Ísleifur Egill

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica