Borgarafundur um menntamál
Í dag, fimmtudaginn 16. apríl, mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál. Hann verður haldinn í stóra sal Háskólabíós kl. 20:00. Fundarstjóri er Sigurjón M. Egilsson.
Tilgangur fundarins er að veita íslenskum námsmönnum og starfsfólki menntakerfisins tækifæri á að kynna sér áherslur flokkanna og taka afstöðu fyrir Alþingiskosningarnar. Í upphafi fundar munu fjórir fulltrúar, þ.e. fulltrúar stúdenta, framhaldsskólanema, háskólasamfélags og atvinnulífs halda framsögu. Að því loknu munu fulltrúar stjórnmálaflokkanna sitja fyrir svörum í pallborði.
Ung vinstri græn hvetja alla til þess að mæta. Ung vinstri græn benda á að menntakerfið er farsælasti vegur til framtíðar sem stendur boða í kreppu og vonast til þess að allir, sem láta sig málið varða, mæti í stóra sal Háskólabíós.
Framsögufólk:
- Atvinnulífið: Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr
- Háskólasamfélagið: Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
- Stúdentar: Saga Garðarsdóttir, leiklistarnemi úr Listaháskóla Íslands
- Framhaldsskólar: Hreiðar Már Árnason, frá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema
Fulltrúar stjórnmálaflokka:
- Framsóknarflokkurinn: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
- Sjálfstæðisflokkurinn: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
- Frjálslyndi flokkurinn: Karl V. Matthíasson
- Borgarahreyfingin: Baldvin Jónsson
- Lýðræðishreyfingin: Ekki fengist svar
- Samfylkingin: Katrín Júlíusdóttir
- Vinstri græn: Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
