Dagskrá kosningamiðstöðvar á næstunni
Á næstu dögum verða nokkrir atburðir í kosningamiðstöð UVG að Suðurgötu 3.
Fimmtudagur:
Opið frá 16:00 – 22:00
Brynja Björg Halldórsdóttir sem skipar 7. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður spjallar við gesti.
Föstudagur:
Opið frá 16:00 – 22:00
Kristján Ketill Stefánsson, kennari og ungskáld, verður með upplestur úr verkum sínum og spjallar við gesti. Kristján Ketill skipar 8. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Laugardagur:
Opið frá 13:00 – 18:00
Ung vinstri græn bjóða gestum uppá grillaðar pylsur í kosningamiðstöðinni að Suðurgötu 3. Allir eru hvattir til að mæta og kynna sér stefnumál og áherslur Ungra vinstri grænna eða ræða um málefni líðandi stundar við fulltrúa úr starfi UVG.
Allir velkomnir – alltaf heitt á könnunni

