Ung vinstri græn
Fréttasafn

Kodd'í sleik, ekki stríðsleik

Koddísleik plakatið

Föstudaginn 23. apríl bjóða Ung vinstri græn til tónleika á Organ undir yfirskriftinni „Kodd'í sleik, ekki stríðsleik“.

Fyrir 40 árum, í maí 1968, risu róttækir stúdentar í Parísarborg upp gegn valdinu og hefðunum. Sú uppreisn hratt af stað hreyfingu sem breiddi úr sér um öll Vesturlönd, baráttuhreyfingu ungs fólks fyrir frelsi, jafnrétti og kærleika sem sýndi harða andstöðu gegn Víetnam-stríðinu og vopnakapphlaupi stórveldanna. Alþjóðlegt slagorð þessarar hreyfingar var „Make love - not war“ og er yfirskrift tónleikanna íslensk þýðing á því.

Ung Vinstri græn vilja einmitt frið og kærleika í stað vígbúnaðar og hervæðingar. Því miður hafa íslensk stjórnvöld þátttöku í þremur stríðum á samviskunni. Fyrst var sprengjum varpað á Júgóslavíu 1999, svo var ráðist inn í Afganistan 2001 og síðast var háð styrjöld í Írak 2003 sem stendur enn yfir. Við höfum mótmælt öllum þessum stríðum á sömu forsendum: Stríð leysa engan vanda.

Ung Vinstri græn vilja utanríkisstefnu sem stuðlar að friði og samvinnu en ekki hernaði og átökum. Við skorum á íslensk stjórnvöld að hætta hernaðarleikjum með rándýrum herþotum, heræfingum og útgjöldum til NATO.

Ung vinstri græn hvetja alla, ráðamenn og aðra, til þess að mæta á Organ föstudaginn 23. maí klukkan 21:00 og fara í góðan sleik og nýta þannig orku sína í þágu ástar og kærleika í stað ófriðar og haturs.
Koddísleik plakatið

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica