Á döfinni hjá UVG
Á næstu dögum er ýmislegt á döfinni hjá Ungum vinstri grænum. Næstkomandi þriðjudagskvöld (4. nóvember) kl. 20:00 stendur UVG fyrir opnu kaffihúsakvöldi á kaffi Hljómalind þar sem umræðuefnið er spurningin sem brennur á flestum: Hvað nú? Enginn ræðumaður verður á fundinum heldur vilja UVG heyra í ungu fólki úr öllum áttum um hvernig það sér fyrir sér að nýtt samfélag líti út. Nýir félagar og þeir sem lítinn þátt hafa tekið í starfi UVG eru sérstaklega hvattir til að mæta, fá sér kaffibolla og taka þátt í að móta stefnu þá stefnu sem við viljum að sé höfð í hávegum þegar við endurmótum samfélagið eftir hrun nýfrjálshyggjunnar.
Næsta fimmtudag (6. nóvember) standa Ung vinstri græn svo fyrir opnum fundi um málefni Evrópusambandsins, en fundurinn er sá fyrsti í fundarröð UVG þar sem málefni Evrópusambandsins eru skoðuð ofaní kjölinn til að móta sjálfstæða stefnu hreyfingarinnar í Evrópumálum. Á þessum fyrsta fundi mun Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, halda framsögu um ýmis grundvallaratriði sem felast í aðild að Evrópusambandinu. Fundurinn mun fara fram á Suðurgötu 3 kl. 20:00.
Miðvikudaginn 12. nóvember verður svo annar fundurinn í ESB-fundarröðinni haldinn kl. 20:00 á Suðurgötu 3. Þá mun Ögmundur Jónasson kynna stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Evrópumálum og svara spurningum fundargesta um stefnuna og núverandi sýn VG á Evrópusambandsaðild.
Ung vinstri græn eru á fullu að skipuleggja fleiri opna fundi, smiðjur og atburði á vegum hreyfingarinnar og hvetja alla ungliða til að fylgjast með, mæta á atburði og taka þátt í starfinu.
