Ung vinstri græn
Fréttasafn

Mikill stuðningur ungs fólks

Vinstri græn eru stærsti stjórnmálaflokkur landsins í aldurhópnum 18 til 24 ára samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem kynntar voru í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Í þessum aldurshópi njóta félagshyggjuflokkarnir tveir, Vinstri græn og Samfylkingin, um 85% fylgi en hægri flokkarnir þrír aðeins 15%.

Vinstri græn njóta stuðnings 42,7% aðspurðra í aldursflokknum 18 til 24 ára en Samfylkingin 41,9%. Af hægriflokkunum er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 10,4% svo kemur Framsóknarflokkurinn með 3,8% og loks Frjálslyndi flokkurinn með 1,2%. Íslandshreyfingin mælist með 0,3% fylgi.

Ef litið er á stuðning í öllum aldurshópum eru Vinstri græn næst stærsti flokkurinn, með stuðning 26,9% aðspurðra, á eftir Samfylkingunni sem nýtur stuðnings 36,9% aðspurðra.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica