Fréttasafn
Fundur um Evrópusambandið
Ung vinstri græn standa fyrir opnum fundi um Evrópusambandið fimmtudaginn 6. nóvember. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og verður haldinn að Suðurgötu 3.
Þetta er fyrsti fundur UVG í fundaröð um Evrópusambandið með það að markmiði að móta sjálfstæða stefnu hreyfingarinnar í málefnum ESB. Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur mun halda framsögu um ýmis grundvallaratriði sem aðild að ESB felur í sér auk þess að svara spurningum fundargesta.
