Ung vinstri græn
Fréttasafn

Hendum reikningunum - gjörningur á laugardaginn

Á morgun bjóða Ung vinstri græn landsmönnum öllum að henda reikningum sínum í ruslið. Í ljósi þess að lán stjórnenda í bönkum eru umsvifalaust afskrifuð um leið og illa árar telja UVG að hið sama hljóti að gilda um reikninga almennings. Fólk getur annað hvort komið með eigin reikninga og hent í sérstaka reikningaruslatunnu UVG eða hent reikningunum sem verða á staðnum, og berast nú frá ríkisstjórninni og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og eru stílaðir á íslensku þjóðina.

Athöfnin fer fram á fyrir framan Alþingi á morgun, laugardag, kl. 14:30 og eru landsmenn allir hvattir til að mæta.

***

Steinunn Rögnvaldsdóttir, formaður UVG:

„Gjörningurinn felst sem sagt í því að bjóða fólki að koma og henda reikningunum sínum á laugardaginn, með vísun í að það virðist vera allt í lagi að afskrifa lán bankafólks sem það tók fyrir hlutabréfum, en íbúðarlán og önnur lán almennings hverfa ekki. Sumir eru þannig augljóslega jafnari en aðrir.

Fólk getur komið með reikningana sína, en við erum líka með tilbúna reikninga fyrir þau og fólk getur líka skrifað reikning fyrir hverju sem það vill til að henda á staðnum. Reikningarnir sem við létum útbúa eru fyrir öllu á milli himins og jarðar: Varnarmálastofnun, Þjóðkirkjunni, Sjúkratryggingastofnun, nýfrjálshyggjunni, ferðinni á ríveríuna, kapítalismanum, útrásarsukkinu og fleiru. Sendendur eru m.a ríkisstjórnin, verðbréfaguttarnir og Sjálfstæðisflokkurinn en reikningurinn er yfirleitt stílaður á íslensku þjóðina eða komandi kynslóðir.“

 

(Af gefnu tilefni vilja Ung vinstri græn taka það fram að ekki er verið að hvetja fólk til að standa ekki í skilum heldur er gjörningurinn táknræn ádeila á það fordæmi sem sett er þegar að skuldir ákveðins forréttindahóps eru felldar niður en almenningur þarf enn að greiða sínar skuldir).

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica