Dagskrá vikunnar hjá UVG
Á morgun, þriðjudaginn 11. nóvember, standa Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu (UVG-H) fyrir nýliðakvöldi á Súfistanum í Hafnarfirði kl. 20:00.
Miðvikudaginn 12. nóvember er komið að næsta fundi í fundarröð UVG um málefni Evrópusambandsins. Á síðasta fundi fræddi Baldur Þórhallsson okkur um hvað felst í aðild að ESB og var það afar góður og vel sóttur fundur. Nú er komið að þingflokki Vinstri-grænna að skýra sitt sjónarhorn og því mun þingmaðurinn Ögmundur Jónasson koma hitta okkur á Suðurgötu 3 klukkan 20:00 á miðvikudagskvöld. Ögmundur mun tala um stefnu VG gagnvart Evrópusambandinu og sitja fyrir svörum fundargesta um málefni ESB.
Á fimmtudaginn 13. nóvember er svo komið að nýliðakvöldi UVG-H í Hamraborg í Kópavogi, og mun það hefjast kl. 21:00.
Ung vinstri græn hvetja hina mörgu nýliða sem bæst hafa í hóp okkar að undanförnu, sem og gamla meðlimi, til að láta sjá sig á atburðum UVG og taka þátt í skemmtilegu og róttæku pólitísku starfi á þessum umbrotatímum sem við upplifum nú.
Öll velkomin!
