Viðburðir vikunnar hjá UVG
Fjórir viðburðir verða á vegum Ungra vinstri grænna í þessari viku.
Þriðjudaginn 18. nóvember verður þriðja nýliðakvöld UVG á höfuðborgarsvæðinu haldið á Draumakaffi í Mosfellsbæ og hefst klukkan 20:00. Fjallað verður um stefnu UVG auk þess sem fundargestum gefst færi á að spjalla við fulltrúa UVG á höfuðborgarsvæðinu um samfélagsmál.
Miðvikudaginn 19. nóvember halda Ung vinstri græn á Akureyri fund um ástandið í þjóðfélaginu. Fundurinn verður haldinn á Bláu könnunni og hefst klukkan 20:00. Dýrleif Skjóldal, varabæjarfulltrúi, mun fara yfir stöðu mála og leiða umræður um það hvernig samfélag við viljum byggja á rústum nýfrjálshyggjunnar.
Sama kvöld munu Ung vinstri græn standa fyrir opnum umræðufundi í húsnæði VG að Suðurgötu 3. Sá fundur hefst einnig klukkan 20:00. Til stendur að ræða nýliðna atburði í stjórnmálunum á borð við samkomulagið um Icesave-reikningana.
Fimmtudaginn 20. nóvember verður síðasta nýliðakvöld UVG á höfuðborgarsvæðinu haldið í Friðarhúsi við Snorrabraut og hefst klukkan 20:00. Fjallað verður um stefnu UVG auk þess sem fundargestum gefst færi á að spjalla við fulltrúa UVG á höfuðborgarsvæðinu um samfélagsmál. Þá munu Finnur Dellsén og Ármann Jakobsson sjá um bókakynningu á nýútkomnu greinarsafni í ritstjórn þeirra félaga sem ber nafnið Múrbrot, og hefur að geyma fjölmargar greinar um vinstri-pólitík sem birtust á vefritinu sáluga, Múrnum.
Ung vinstri græn hvetja sem flesta til að mæta á viðburði hreyfingarinnar og taka þátt í að móta nýtt og betra samfélag.
