Ung vinstri græn
Fréttasafn

Umræðukvöld UVG í Reykjavík og kaffihúsakvöld á Akureyri

Ung vinstri græn minna á opinn umræðufund í kvöld, 19 nóvember, sem fram mun fara í húsnæði VG að Suðurgötu 3. Fundurinn hefst kl 20:00.

Framsögumaður verður Guðfríður Lilja, varaþingkona VG. Til stendur að ræða nýliðna atburði í stjórnmálunum á borð við samkomulagið um Icesave-reikningana.

Einnig minnum við á opinn fund UVG á Akureyri um ástandið í þjóðfélaginu. Fundurinn hefst kl. 20:00 og mun fara fram á kaffihúsinu Bláu Könnunni. Dýrleif Skjóldal, varabæjarfulltrúi VG á Akureyri fer yfir stöðu mála og leiðir umræður um það hvernig samfélag við viljum byggja á rústum nýfrjálshyggunnar.

Öll velkomin!

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica