Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ætlar þú á landsfund?

  • vg-logo

Næstkomandi fimmtudag, þann 12. febrúar, mun félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík velja fulltrúa svæðisfélagsins á landsfund flokksins sem að fram fer dagana 20.-22. mars. Í öðrum kjördæmum landsins hefur ekki verið auglýstur frestur til að velja landsfundarfulltrúa. Ung vinstri græn hvetja þá meðlimi hreyfingarinnar sem hafa áhuga á að vera landsfundarfulltrúar að hafa samband við UVG og mun hreyfingin þá leggja fram tillögu um þá félaga sína sem við viljum koma að á landsfundi.

Hafa verður í huga að til að vera landsfundarfulltrúi þarf a) að vera skráður í flokkinn og b) að vera á hreinu hvaða svæðisfélagi viðkomandi tilheyrir, þar sem það eru svæðisfélögin sem að sjá um að tilnefna landsfundarfulltrúa.

Sem sé, ef þið viljið vera landsfundarfulltrúar og taka þátt í einum mikilvægasta og skemmtilegasta landsfundi sem haldinn verður í nafni Vinstri grænna, sendið okkur póst á uvg@vinstri.is eða hafið samband við varaformann UVG, Jan Eric Jessen, í síma 615 4433, og látið vita hvaða svæðisfélagi þið tilheyrið. Verið alveg óhrædd við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna. Við minnum á að ef þið tilheyrið Reykjavíkurfélaginu þá verðið þið að hafa samband fyrir fimmtudaginn. Athugið að aðild að svæðisfélögum fer ekki endilega eftir lögheimili.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica