Fréttasafn
Hvað nú? - Kaffihúsaspjall á þriðjudaginn
Hvað nú? - Kaffihúsaspjall Ungra vinstri grænna um nýtt samfélag
Ung vinstri græn bjóða í kaffihúsaspjall um nýja samfélagsskipan, um Ísland eftir frjálshyggjuna. Staðurinn er Kaffi Hljómalind, tíminn 20:00 þriðjudaginn 4. nóvember.
Enginn ræðumaður verður á fundinum heldur vilja UVG heyra í ungu fólki úr öllum áttum um hvernig það sér fyrir sér að nýtt samfélag líti út. Nýir félagar og þeir sem lítinn þátt hafa tekið í starfi UVG eru sérstaklega hvattir til að mæta, fá sér kaffibolla og taka þátt í að ryðja nýja braut fyrir Ísland. Nú er tækifærið til að breyta!
