Mótmæli vegna NATO-fundar
Ung vinstri græn vekja athygli félagsmanna sinna á mótmælum fyrir framan
Þjóðmenningarhúsið kl. 18:30 annað kvöld, 28. janúar, vegna ráðstefnu og kokteilboðs
herbandalagsins NATO hér á landi í vikunni.
Á heimasíðu Samtaka hernaðarandstæðinga, fridur.is, eru þessar upplýsingar um málið:
"Fyrir dyrum stendur ráðstefna á vegum Nató og íslenskra stjórnvalda, sem haldin
verður á Hilton hóteli n.k. fimmtudag. Ráðstefna þessi hefur þann megintilgang að
leita réttlætinga fyrir áframhaldandi hernaðarumsvifum á Íslandi, s.s. heræfingum
Nató-flugsveita og sívaxandi íslenskri Varnarmálastofnun. Vert er að vekja athygli á
greinargóðri samantekt á Friðarvefnum, þar sem hernaðarútgjöld ríkissjóðs samkvæmt
fjárlögum eru rakin. Hana má lesa hér að neðan.
N.k. miðvikudag kl. 18:30 verður móttaka í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu fyrir
gesti Nató-þingsins. SHA hvetja félagsmenn sína sem og aðra friðelskandi Íslendinga
til að mæta fyrir framan Þjóðmenningarhúsið á þeim tíma og láta hraustlega í sér
heyra."
Við vekjum einnig athygli á samantekt samtakanna á hernaðarútgjöldum ríkissjóðs,
http://fridur.is/2009/01/09/fjarlog-2009-14-milljarður-i-hernaðarmal/
Mótmæli vegna NATO-ráðstefnunnar hafa verið boðuð af fleirum en SHA, en á Facebook
hafa aðgerðarsinnar boðað mótmæli á fyrrnefndum tíma, kl. 18:30 á miðvikudagskvöld.
Ung vinstri græn hvetja friðarsinna til að mæta og mótmæla herbandalaginu NATO á
morgun!
*Uppfært*
Kokteillinn hefur verið færður úr Þjóðmenningarhúsinu, væntanlega vegna boðaðra mótmæla. Þeir sem að mótmælunum standa eru að reyna að komast að staðsetningu kokteilsins og mun hún þá birt hér.
