Fréttasafn
Réttlátara skattkerfi
Skattar eru leið samfélagsins til að afla tekna til sameiginlegra verkefna. Í nútímasamfélagi eru verkefnin mörg og almenningur gerir miklar kröfur til hins opinbera. Til þess að skattbyrði einstaklinga verði ekki of mikil þarf hún að vera réttlát. Þar skiptir skatthlutfallið ekki mestu máli, heldur hvernig skattarnir dreifast. Skattbyrði einstaklings getur minnkað þótt skattprósentan hækki, ef persónuafslátturinn eykst meira en sem nemur hækkun hennar.
Stjórn UVG
