Ung vinstri græn
Fréttasafn

Vel heppnaður aðalfundur og ný stjórn UVG á Suðurlandi

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Suðurlandi var haldinn þann 25. nóvember síðastliðinn á Selfossi. Á fundinum var lögum félagsins breytt m.a. þannig að fjölgað var í stjórn félagsins, nokkrar ályktanir voru samþykktar og ný stjórn kjörin.

 

Eftirfarandi voru kjörin í nýja stjórn UVG á Suðurlandi: Daníel Haukur Arnarsson (formaður), Andrés Rúnar Ingason, Elín Birna Vigfúsdóttir, Kári Úlfsson og Kristín Lilja Björnsdóttir. Varamenn eru: Árný Fjóla Ásmundardóttir, Óli Valur Pétursson, Sigurður Daðason og Sóley Linda Egilsdóttir.

 

Það er ánægjulegt að nú hafi fjölgað í stjórn Ungra vinstri grænna á Suðurlandi og má rekja það til hins mikla áhuga sem er á starfsemi Ungra vinstri grænna. Stjórn Ungra vinstri grænna óskar nýkjörnum stjórnarmeðlimum til hamingju með kjörið og velfarnaðar í störfum sínum.

 

Ályktanir fundarins munu birtast hér á vinstri.is á næstu dögum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica