Næst á döfinni: ESB-fundur og hreyfimyndakvöld
Ung vinstri græn standa fyrir opnum fundi um ESB og landbúnað á miðvikudagskvöld og Hreyfimyndahreyfing UVG sýnir annan hluta þríleiksins „The Trap“ á fimmtudagskvöld.
Evrópusambandið og landbúnaður
Fundarröð Ungra vinstri grænna um Evrópusambandið heldur áfram og næsti fundur verður miðvikudaginn 21. janúar þegar við fáum til okkar Ernu Bjarnadóttur, hagfræðing hjá Bændasamtökum Íslands. Erna mun flytja erindi um Evrópusambandið og landbúnað, og hvernig innganga Íslands í ESB myndi hafa áhrif á íslenskan landbúnað. Erna mun svo svara spurningum fundargesta. Fundurinn hefst klukkan 20:00 á Suðurgötu 3 í Reykjavík.
Nú er komið að öðrum hluta þríleiksins "The Trap"!
Hreyfimyndahreyfing UVG sem hélt uppi stuðinu í próftíðinni í síðasta mánuði byrjar árið með þríleiknum „The Trap”, en sýningar fara fram þann miðvikudaginn 14. janúar, fimmtudaginn 22. janúar, og miðvikudaginn 28. janúar. Sýningarnar hefjast kl. 20:00 og eru sem áður til húsa í Byltingarkjallara UVG að Suðurgötu 3 í Reykjavík.
„The Trap“ er afar vönduð og fræðandi BBC-þáttaröð í þremur klukkustundar löngum hlutum um hugtakið frelsi í nútímanum, um hvernig það hefur verið afskræmt á seinni hluta 20. aldar, lagt að jöfnu við eigingirni, og misnotað í pólitískum tilgangi. Þættirnir rekja þróun ákveðinnar sýnar á mannskepnuna sem er upprunnin í ofsóknaræði Kalda stríðsins, var síðar notuð sem kjölfesta í pólitík Margrétar Thatcher á 9. áratugnum, og hefur drottnað yfir vestrænum samfélögum allt fram á okkar daga.
Þáttaröðin er eftir hinn virta breska dagskrárgerðarmann Adam Curtis, sem hefur m.a. gert þáttaraðirnar The Power of Nightmares og Century of the Self, einnig fyrir BBC.
The Trap á Wikipediu:
http://en.wikipedia.org/wiki/The_Trap_(television_documentary_series)
