Áramótakveðja
Í ljósi mikilla vinsælda þess að gefa ráðherrum gjafir fyrir þessi áramót bjóða Ung vinstri græn þeim ráðherrum sem hafa áhuga á að mæta á skrifstofu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að Suðurgötu 3 milli 12-13 á gamlársdag, og taka á móti gjöf ungliðahreyfingarinnar.
Þó að það sé ef til vill ekki alltaf vinsælt að gefa upp hvað sé í pökkum er því þó ljóstrað upp strax að ekki er um áfengi að ræða heldur stjörnuljós. Við vonum að ráðherrar vorir, sem og aðrir landsmenn, geti notið áramótanna með fjölskyldum sínum, drukkið hóflega af víni en umfram allt tendrað ljós og hugsað fallega til björgunarsveitanna sem byggja megin afkomu sína á sölu flugelda.
