Kvikmyndakvöld næsta miðvikudag
Miðvikudaginn 3. desember stendur hreyfimyndahreyfing UVG fyrir kvikmyndakvöldi að Suðurgötu 3 í Reykjavík. Sýningin hefst klukkan 20:00 og eru allir velkomnir.
Sýnd verður heimildamyndin The Corporation, frá árinu 2003. Myndin fjallar um fyrirtæki og þá staðreynd að Bandaríkjamenn ákváðu fyrir löngu síðan að fyrirtæki skyldu hafa réttarstöðu einstaklinga. Kvikmyndargerðamennirnir fara ofan í kjölinn á þessari skilgreiningu og komast að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki séu þá verulega siðblindir einstaklingar með persónuleikaröskun. Þessi mynd, sem löngu er orðin sígild í flokki vinstri-heimildamynda, er algjört skylduáhorf fyrir hugsandi fólk. Hún er jafnframt skýr vitnisburður um það fjármagnsalræði sem hefur stýrt heiminum undanfarna áratugi með hörmulegum afleiðingum fyrir fólk og lífríki, eins og dæmin sanna. Þeir sem ekki hafa séð þessa frábæru mynd fá nú tækifæri til þess og þeim sem þegar hafa séð hana gefst kostur á að rifja hana upp.
