Fréttasafn
Minnum á fund með Siðmennt í kvöld
Í kvöld, fimmtudagskvöldið 15. janúar standa Ung vinstri græn fyrir opnum fundi þar sem að lífsskoðunarfélagið Siðmennt, félag Siðrænna húmanista á Íslandi, kynnir starfsemi sína. Varaformaður Siðmenntar, Bjarni Jónsson, mun halda erindi um starfsemi Siðmenntar og að því loknu munu hann og formaður Siðmenntar, Hope Knútsson, svara spurningum fundargesta. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst kl. 20:00.
