Næst á döfinni: The Trap, Siðmennt, ESB og landbúnaður og málgagnið Íllgresi
Með hækkandi sól færist fjör í starf Ungra vinstri grænna. Við hefjum nýtt ár með fjölbreyttu starfi og vonum að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Hér er yfirlit yfir það sem er á döfinni hjá Ungum vinstri grænum á næstunni:
Hreyfimyndahreyfing UVG sýnir „The Trap“
Hreyfimyndahreyfing UVG sem hélt uppi stuðinu í próftíðinni í síðasta mánuði byrjar árið með þríleiknum „The Trap”, en sýningar fara fram þann miðvikudaginn 14. janúar, fimmtudaginn 22. janúar, og miðvikudaginn 28. janúar. Sýningarnar hefjast kl. 20:00 og eru sem áður til húsa í Byltingarkjallara UVG að Suðurgötu 3 í Reykjavík.
„The Trap“ er afar vönduð og fræðandi BBC-þáttaröð í þremur klukkustundar löngum hlutum um hugtakið frelsi í nútímanum, um hvernig það hefur verið afskræmt á seinni hluta 20. aldar, lagt að jöfnu við eigingirni, og misnotað í pólitískum tilgangi. Þættirnir rekja þróun ákveðinnar sýnar á mannskepnuna sem er upprunnin í ofsóknaræði Kalda stríðsins, var síðar notuð sem kjölfesta í pólitík Margrétar Thatcher á 9. áratugnum, og hefur drottnað yfir vestrænum samfélögum allt fram á okkar daga.
Þáttaröðin er eftir hinn virta breska dagskrárgerðarmann Adam Curtis, sem hefur m.a. gert þáttaraðirnar The Power of Nightmares og Century of the Self, einnig fyrir BBC.
Fundur með Siðmennt
Fimmtudaginn 15. janúar standa Ung vinstri græn fyrir opnum fundi þar sem að lífsskoðunarfélagið Siðmennt, félag Siðrænna húmanista á Íslandi, kynnir starfsemi sína. Varaformaður Siðmenntar, Bjarni Jónsson, mun halda erindi um starfsemi Siðmenntar og að því loknu munu hann og formaður Siðmenntar, Hope Knútsson, svara spurningum fundargesta. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst kl. 20:00.
Evrópusambandið og landbúnaður
Fundarröð Ungra vinstri grænna um Evrópusambandið heldur áfram og næsti fundur verður miðvikudaginn 21. janúar þegar við fáum til okkar Ernu Bjarnadóttur, hagfræðing hjá Bændasamtökum Íslands. Erna mun flytja erindi um Evrópusambandið og landbúnað, og hvernig innganga Íslands í ESB myndi hafa áhrif á íslenskan landbúnað. Erna mun svo svara spurningum fundargesta. Fundurinn hefst klukkan 20:00 á Suðurgötu 3 í Reykjavík.
Þegar daginn tekur að lengja og jörðin brýst úr klakaböndum sínum fer Íllgresið á stjá...
Íllgresi er málgagn Ungra vinstri grænna sem kemur út nú í vor, að þessu sinni í ritstjórn Elíasar Jóns Guðjónssonar. Rauði þráðurinn í þessari útgáfu af Íllgresi verður hvernig ungt og róttækt fólk sér fyrir sér framtíðarsamfélagið (á Íslandi sem og eða á heimsvísu) og hvernig það verður byggt upp.
Vinna við málgagnið er að fara af stað og er boðað til undirbúningsfundar næsta miðvikudag,14. janúar, kl. 18:00 í Byltingarkjallara UVG að Suðurgötu 3. Öll þau sem hafa áhuga á að leggja hönd á plóg við útgáfu blaðsins, hvort sem um er að ræða hönnun og umbrot, ljósmyndun, skriftir, prófarkalestur eða annað, eru hvött til að mæta á fundinn. Eigi einhver ekki heimangengt en langar engu að síður að taka þátt í Íllgresi bendum við viðkomandi á að hafa samband við ritstjóra í gegnum netfangið: elias@kommunan.is.
