Ung vinstri græn
Fréttasafn

Hvers vegna hvalir?

Haustönninni í starfinu lýkur með spennandi fundi um dýraverndunarmál í Hafnarstræti 20 klukkan 20:00 á morgun, þriðjudag.

Hann ber yfirskriftina: Hvers vegna hvalir? Af hverju á að vernda hvali og hvað með hundrað milljón tilfinningarök?

Frummælendur eru Della Gren frá IFAW (International Fund For Animal Welfare) og Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Það er fengur að því að fá þetta fólk til að ræða þessi mál og vafalaust verða umræður fjörugar. Við hvetjum alla til að mæta og minnum á að í Hafnarstræti er aðgengi fyrir alla.

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica