Fréttasafn
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Akureyri
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á Akureyri verður haldinn miðvikudaginn 22. október klukkan 20:00 í aðstöðu Vinstri grænna á efri hæð JMJ hússins. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Ræða fráfarandi formanns UVGA
2. Skýrsla stjórnar
3. Kynning á lagabreytingatillögum
4. Tillögur af ályktunum kynntar
5. Önnur mál og almennar stjórnmálaumræður
6. Kosið um lagabreytingatillögur og afgreiðsla ályktana
7. Kosning stjórnar
Framboð í stjórn félagsins og tillögur að lagabreytingum skulu berast á netfangið jej4@hi.is.
