Ung vinstri græn
Fréttasafn

NATO-væðing í Háskóla Íslands? - Opið bréf til Kristínar Ingólfsdóttur rektors

Á mánudaginn sl. stóð Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi um „mikilvægi Afganistan fyrir NATO“. Þar fluttu tveir menn fyrirlestra, báðir úr innsta ranni hernaðarbandalagsins NATO, og enginn fulltrúi gagnstæðra sjónarmiða. Sama dag og málþingið fór fram sendi Háskólinn bréf á alla stúdenta þar sem vakin er athygli á sérstakri „starfsþjálfun hjá NATO“. Þessi kynning á beinlínis að fara fram í húsakynnum Háskólans og er eins og áður segir auglýst af Háskólanum sjálfum.

Ung Vinstri græn beina þeirri spurningu til rektors hvort þess megi vænta að Háskóli Íslands, opinber stofnun sem gæta á hlutleysis í starfi sínu, muni héðan eftir líta á það sem hlutverk sitt að styrkja einstök hernaðarbandalög með þessum hætti. Ef svo er, þá vilja Ung Vinstri græn fá skriflegt svar um það hvaða hernaðarbandalög hafi slíkan rétt, þ.e.a.s. hvaða skilyrði hernaðurinn þarf að uppfylla til að hann teljist Háskólanum þóknanlegur. Ung Vinstri græn vilja í því sambandi benda á að NATO stendur fyrir 70% af öllum útgjöldum til hernaðar í heiminum og hvetur þannig aðrar þjóðir til frekari vígvæðingar, og hefur auk þess hafnað því sérstaklega að útiloka beitingu kjarnorkuvopna að fyrra bragði.

Með friðarkveðju,
Stjórn Ungra Vinstri grænna

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica