Fréttasafn
1. mai um land allt
Ung vinstri græn hvetja félaga sína um land allt að taka þátt í atburðum á morgun, 1. mai, og sýna samstöðu á baráttudegi verkalýðsins.
Í Reykjavík ætlum við að safnast saman við Hlemm kl. 13:00 og taka þátt í kröfugöngunni sem hefst kl. 13:30.
Ung vinstri græn á Akureyri halda sína árlegu baráttutónleika annað kvöld á Græna Hattinum, Hafnarstræti 96. Þar mun mæta til leiks trúbadorinn og skemmtikrafturinn Svavar Knútur. Skemmtunin hefst kl. 21:00 og er frítt inn.
