Fréttasafn
Hreyfimyndahreyfing UVG sýnir "The War on Democracy"
Hreyfimyndahreyfing UVG sýnir heimildarmyndina "The War on Democracy" fimmtudagskvöldið 18. desember kl. 20:00.
"The War on Democracy" er vönduð mynd eftir blaðamanninn virta, John Pilger. Myndin fjallar um stjórnmál í Rómönsku Ameríku og afskipti Bandaríkjanna af innanlandsstjórnmálum sjálfstæðra ríkja á því svæði. Þetta er mjög góð heimild um Suður-Ameríku og hvernig sú álfa hefur farið út úr kalda stríðinu, með sérstakri áherslu á Venezuela og Chavez.
Sýningin mun fara fram í Byltingarkjallara UVG að Suðurgötu 3.
Öll velkomin
