Aðalfundur UVGR
Aðalfundur Ungra Vinstri grænna í Reykjavík verður laugardaginn 27.september næstkomandi. Lagabreytingartillögur um útvíkkun starfssvæðis UVGR þannig að félagið yrði opið félögum með lögheimili í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður auk Suðvesturkjördæmis, liggja fyrir á fundinum til samþykktar eða synjunar.
Fundur hefst kl. 16.00 og verður í húsnæði flokksins í Kragakaffi við Hamraborg.
Dagskrá fundarins verður þessi:
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Framkomnar tillögur að ályktunum og lagabreytingum kynntar.
4. Skýrsla stjórnar/ræða formanns Ungra vinstri-grænna í Reykjavík.
5. Önnur mál.
-Kaffihlé-
6. Kosið um lagabreytingartillögur.
7. Afgreiðsla ályktanna.
8. Kosning stjórnar.
Framboð til stjórnar skal senda til kjörstjórnar, Uglu Egilsdóttur á netfangið uglaegilsdottir@gmail.com fyrir 26. september.
Stjórn UVGR
