Landsfundur UVG á Akureyri helgina 4.-5. október 2008
Hér með er boðað til landsfundar Ungra vinstri grænna, sem haldinn verður á Akureyri 4.-5. október 2008. Sem félagi í UVG hefur þú atkvæðisrétt en aðrir eru líka hjartanlega velkomnir. Þeir skulu þó ekki örvænta því það verður hægt að skrá sig á staðnum.
Þar sem farið verður í rútu til Akureyrar þurfið þið að skrá þáttöku ykkar með því að senda póst á uvg@vinstri.is eða hringja í síma 8667247 (Finnur). Dagskrá og frekari upplýsingar eru hér að neðan.
Landsfundarferð UVG til Akureyrar
Föstudagurinn 3/10
17:00 Förum af stað í rútu frá höfuðstöðvum VG, Suðurgötu 3 (101 Rvk.)
22:00 Svefnpokagisting í félagsheimili Þórs á Akureyri (Hamar)
Laugardagurinn 4/10
8:00 Allir í sund!
9:30 Förum af stað upp í Lón (Hrísalundi) á Akureyri
10:00 Landsfundur hefst (sjá hér að neðan)
18:00 Vísindaferð í ölgerðina Víking
21:00 Skemmtikvöld UVG
Sunnudagurinn 5/10
13:00 Landsfundur hefst aftur (sjá hér að neðan)
15:00 Landsfundi lýkur
16:00 Förum af stað aftur til Reykjavíkur
Dagskrá landsfundar UVG
Laugardagurinn 4/10
10:00 Mæting í Lóni í Hrísalundi
10:30 Fundur settur, starfsmenn fundarins kosnir og gögnum dreift
10:45 Ávarp fráfarandi formanns
11:00 Skýrsla stjórnar og samþykkt ársreikninga
11:20 Kynning á drögum að lagabreytingum, fyrirliggjandi ályktunum og endurskoðaðri stefnuyfirlýsingu
12:15 Hádegishlé
13:00 Almennar stjórnmálaumræður
14:00 Hópastarf
15:00 Kaffihlé
15:30 Afgreiðsla lagabreytinga, stefnuyfirlýsingar og ályktana
17:30 Fundi frestað til morguns
Sunnudagurinn 5/10
12:30 Kvikmyndasýning og umræður
14:45 Kosning stjórnar
15:00 Fundi slitið með ávarpi nýs formanns
ATHUGIÐ!
Til að halda kostnaði í lágmarki munum við gista í svefnpokaplássi báða dagana og þið þurfið því að taka með ykkur svefnpoka og dýnu og ekki er verra að hafa líka með sér sundföt. En það kostar samt sitt að leiga rútu og fundarsal og því þurfum að rukka ykkur um landsfundargjald til að kostnaðurinn af fundinum bitni ekki starfinu næsta vetur. Landsfundargjaldið er 2.500 kr., innifalið er rútuferð fram og til baka, gisting, fundurinn sjálfur og skemmtunin um kvöldið. Þeir sem ekki fara með rútunni fá að sjálfsögðu afslátt. Skráning á uvg@vinstri.is og í síma 8667247 (Finnur).
