Ung vinstri græn
Fréttasafn

Stofnfundur UVG á Reykjanesi

Stofnfundur Ungra vinstri grænna á Reykjanesi var haldinn 11. apríl síðastliðinn. Þormóður Logi Björnsson var kjörinn formaður stjórnar en með honum í stjórn sitja nú Hallvarður Jóhannes Guðmundsson og Daði Hreinsson Pagan. Einar Gunnarsson og Hlynur Freyr Sigurhansson voru kjörnir varamenn.

Fundurinn var mjög líflegur og samþykkti m.a. þrjár ályktanir.

1. Stofnfundur UVG á Reykjanesi ályktar að það sé mjög jákvætt að framhaldsskólar séu farnir að bjóða upp á nám fyrir stuðningsfulltrúa. Mikilvægt er að þetta nám fái tíma til að þróast og dafna á faglegum grundvelli.

Greinargerð: Menntun er það dýrmætasta sem við eigum. Við þurfum að gera okkar besta til að auka við vellíðan og þjónustu nemenda. Því fleira fagfólk sem við fáum til að sinna börnunum okkar því betur koma þau búin út úr skólakerfinu.

2. Stofnfundur UVG á Reykjanesi ályktar að það beri að hvetja íþróttamenn og ólimpíusambönd hérlendis sem erlendis að sniðganga Ólimpíuleikana í Peking Kína vegna ítrekaðra brota á mannréttindum og málfrelsi.

Greinargerð: Það er skammarlegt að sú meðferð á íbúum Tíbet sem Kínverjar eru í forsvari fyrir láti viðgangast af stjórnum og íbúum hina vestrænu ríkja. Mannréttindi eru ekki eitthvað sem aðeins á við þegar það hentar og þetta er ekki í fyrsta og örugglega ekki í síðasta
skipti þar sem Kínverjar vaða yfir þau með skítugum skónum. Í það minnsta getum við sýnt í verki að við viljum ekki að þetta viðgangist.

3. Stofnfundur UVG á Reykjanesi ályktar að vinnubrögð og aðferðir við samþykkt á álveri í Helguvík séu til skammar og það sé nauðsýnlegt að þetta mál sé skoðað betur áður en farið sé í verkið.

Greinargerð: Það er furðulegt að það sé hægt að berja hvað sem er í gegnum stjórnsýsluna. Hver er þörfin á álveri og er hægt að gera eitthvað annað en álver? Á sama tíma og flest allir stjórnmálamenn lýsa yfir áhyggjum um hlýnandi veðurfar og mengun, þá komast þeir upp með að segja eitt en sýna eitthvað allt annað í verki.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica