Fréttasafn
Umræðufundur um menntamál hjá Ungum Vinstri-grænum á Akureyri
Ung Vinstri-græn á Akureyri standa fyrir fundi um menntamál nk. miðvikudagskvöld (19. desember). Fundurinn fer fram í aðstöðu Vinstri-grænna á Akureyri á 2. hæð JMJ-hússins og hefst klukkan 20:30. Meðal annars verður rætt um stöðu ungra íslenskra námsmanna í kjölfar svokallaðrar Pisa-könnunar sem birt var á dögunum og leiddi í ljós að íslensk börn væru talsvert lakari námsmenn en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum. Einnig verður innihald frumvarps menntamálaráðherra sem meðal annars felur í sér skerðingu á námi til stúdentsprófs, skoðað og skeggrætt. Fundurinn er öllum opinn og er fólk hvatt til að mæta.
Stjórn UVGA
