Ung vinstri græn
Fréttasafn

Ályktun UVG um skólagjöld við HÍ

Ung vinstri græn mótmæla öllum hugmyndum um að taka upp skólagjöld við Háskóla Íslands.

Umræða um skólagjöld við HÍ er ekki ný af nálinni. Allt frá því að farið var að undirbúa ný lög um Háskóla Íslands sem samþykkt voru á Alþingi 11. mars 1999 hefur þessi umræða verið uppi. Þá voru ýmsir aðilar innan HÍ því fylgjandi að setja inn heimildarákvæði fyrir skólagjöld í lögin en aðrir komu í veg fyrir það, með fulltrúa stúdenta í broddi fylkingar.

Í þeim lögum segir: ?Háskóla Íslands skal heimilt að taka gjald fyrir þjónustu sem telst utan þeirrar þjónustu sem háskólanum er skylt að veita. Honum er enn fremur heimilt að taka gjöld fyrir endurmenntun og fræðslu fyrir almenning.?

Háskólanum er hins vegar skylt að veita nemendum sínum æðri menntun til tiltekinna gráða og hún á lögum samkvæmt að vera ókeypis. Hins vegar hafa stjórnvöld reynt að gera Háskóla Íslands erfitt fyrir í að sinna þessu lögbundna hlutverki sínu með því skera fjárframlög mjög við nögl en styrkja um leið aðra einkarekna háskóla sem einnig innheimta skólagjöld. Því er svo komið að Háskóli Íslands er sjálfur farinn að biðla til stjórnvalda um að fá heimild til að taka upp skólagjöld.

Með því yrði grundvallarhugmynd íslensks menntakerfis um jafnrétti til náms kollvarpað. Allt hjal um að stúdentar gætu fengið lán fyrir gjöldunum er fánýtt enda myndu þau aðeins ýta undir skuldsetningu ungs fólks sem er ærin fyrir. Skólagjöld munu hafa fælandi áhrif fyrir hina efnaminni og auka enn á straum ungs fólks til útlanda. Ung vinstri græn hafna þessum hugmyndum en skora um leið á stjórnvöld að styðja betur við bakið á Háskóla Íslands og rétta af samkeppnisstöðu hans.

Stjórn UVG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica