Ung vinstri græn
Fréttasafn

Kvikmyndakvöld UVG: Borðar þú skít?

Nútíma Íslendingar hafa nóg til hnífs og skeiðar. Í fátækari hlutum jarðarinnar þarf fólk þó að berjast um hvern bita vegna síhækkandi matvælarverðs

Maturinn sem þú borðar hefur farið í gegnum langt ferli áður en hann endaði uppi í þér. Hversu mikið veistu um það sem þú borðar? Í heimildarmyndinni „We Feed the World“ er grennslast fyrir um uppruna matarins sem flest okkar borða dags daglega, og hvers vegna sumir jarðarbúar hafa nóg að borða á meðan aðrir svelta. Áhorfendur fá innsýn í matvælaiðnað Evrópu og hnattvæðinguna að baki henni.

Miðvikudaginn 9. júlí kl. 20:30 munu Ung Vinstri-græn standa fyrir videokvöldi í Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Ekki láta bjóða þér hvað sem er. Komdu og kynntu þér málin.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica