UVG leiðbeina ráðherrum
Ung Vinstri-græn hafa útbúið bækling sem og sent með hraðpósti til forsætis- og utanríkisráðherra á fundi þeirra í Rúmeníu. Þar er að finna leiðbeiningar um það hvernig ráðherrarnir geta komist heim frá Rúmeníu án einkaþotu.
„Í þeim óróleika sem nú er uppi í samfélaginu þurfum við öll að standa saman“ segir Auðir Lilja Erlingsdóttir, formaður UVG. „Þess vegna ákváðum við að senda ráðherrum þjóðarinnar leiðbeiningar um hvernig hægt er að komast heim frá NATO-fundinum í Rúmeníu án þess að nota einkaþotu. Eftir yfirlýsingar ráðherra undanfarna daga vorum við farin að halda að ekki væri hægt að komast heim með almenningsflugi, en það reyndist sem betur fer rangt.“

