Ung Vinstri græn vilja dýpka umræðuna um sjálfstæðisbaráttu Tíbeta
Þöggunin er helsta vopn kínverskra stjórnvalda gegn mótmælendum í Tíbet. Því miður er ástandið ekki mikið skárra hér á landi en í Kína og Tíbet að því leyti að þótt rætt sé um mótmælin sjálf er sárasjaldan haft fyrir því að fjalla um málstað þeirra, orsök þess að þeir mótmæla. Að sama skapi er umfjöllunin oft því marki brennd að talað er um tíbesku þjóðina án þess að talað sé við hana.
Ung Vinstri græn bíða ekki boðanna heldur efna til opins fundar um málefni Tíbets miðvikudaginn 2. apríl kl. 20 á Suðurgötu 3. Á fundinum fjallar tíbeski stjórnmálafræðingurinn Tsewang Namgyal um ástandið í heimalandi sínu og þingmaðurinn Ögmundur Jónasson um aðkomu Íslendinga að lausn vandans.
